Hestadagar hefjast eftir viku!

12. mars 2015
Fréttir
Hestadagar

 

Við viljum vekja athygli á því að Hestadagar hefjast á fimmtudaginn 19. mars, kl 17:00 með opnunarhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sama kvöld kl. 19:00 byrjar svo áhugamannadeildin uppi í Spretti, svo um að gera að kíkja á þessa tvo viðburði.

Á föstudag og laugardag verða svo opin hús í hesthúsum landsins og hvetjum við alla til að bjóða sínu bæjarfélagi í heimsókn og kynna þeim fyrir þessari glæsilegu skepnu sem íslenski hesturinn er.

Laugardaginn 21. mars, kl. 13:00 verður svo hin víðfræga hópreið um miðbæinn, þar sem hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sameinast og skemmta gestum og gangandi. Svellkaldar konur verða svo kl. 16:30 þann sama dag í Skautahöllinni í Laugardal.

Með hækkandi sól hlýtur vorið að nálgast, en á meðan við bíðum þá er um að gera að stytta sér stundir með frábærum hestaviðburðum ;)