Hertar sóttvarnarreglur í íþróttastarfi

24. júlí 2021
Fréttir

Hraðvaxandi fjölgun COVID-19 smita í samfélaginu undanfarna daga hefur nú haft þær afleiðingar að stjórnvöld hafa neyðst til að herða sóttvarnir og setja á ný takmarkanir á samkomur. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra þar að lútandi tekur gildi sunnudaginn 25. júlí nk. og gildir til og með 13. ágúst nk. Vonast er til að hertar reglur séu til skamms tíma á meðan verið er að ná tökum á fjölgun smita.

Helstu takmarkanirnar sem viðkoma íþróttastarfi eru eftirfarandi: 

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin.
  • Nándarregla verður almennt 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar verði undanþegin.
  • Grímuskylda verður tekin upp innanhúss og þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra reglu. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvum sem og sund- og baðstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75% af hámarksfjölda leyfilegra gesta. Sameiginlegan búnað skal sótthreinsa milli notenda.
  • Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna heimilar með og án snertinga. Hámarksfjöldi þeirra sem fæddir eru 2005 og fyrr verður 100 manns í rými.
  • Hámarksfjöldi áhorfenda verður 200 manns í rými sem skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Mögulegt er að hafa fleiri en eitt rými, þ.e. með sérinngangi fyrir hvert rými og að komið sé í veg fyrir blöndun fyrir og eftir viðburð.
  • Veitingasala óheimil á keppnisstöðum.

Frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 25. júlí 2021.

Minnisblað sóttvarnalæknis 22. júlí 2021.

Hugum vel að sóttvörnum í starfi og leik, setjum aukinn kraft í sótthreinsun á búnaði og höfum handspritt áfram aðgengilegt á sem flestum stöðum.