Hefur þú áhuga á að bjóða unglingum í heimsókn?

01. febrúar 2010
Fréttir
Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF. Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1 – 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum.  Þetta er tækifæri fyrir áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl. Æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna í samvinnu við aðra æskulýðsfulltrúa innan FEIF mun í sumar gefa íslenskum unglingum kost á að heimsækja önnur aðildarlönd FEIF. Fyrirkomulagið verður þannig að unglingar á aldrinum 14 – 17 ára verða í 1 – 2 vikur hjá fjölskyldum sem eiga íslenska hesta og taka þátt í þeirra daglegu störfum.  Þetta er tækifæri fyrir áhugasama krakka að kynnast hestamennskunni á erlendri grund og mynda vinatengsl. Einnig er fyrirhugað að bjóða erlendum unglingum til dvalar hér á landi á sömu forsendum.
Æskulýðsnefndin óskar eftir áhugasömum unglingum sem vilja fara og fjölskyldum sem mundu vilja bjóða heim erlendum unglingum.  Miðað verður við að þátttökugjald standi undir kostnaði. Ef þið hafið áhuga vinsamlega hafið samband sem fyrst við æskulýðsnefnd LH. Tölvupóstföng og símanúmer eru á heimasíðu LH á www.lhhestar.is
Með kveðju
 Æskulýðsnefndar LH