Haustfundur Hrossar.samt. Suðurlands

15. október 2010
Fréttir
Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis. Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður haldinn í félagsheimili Hestamannafélagsins Sleipnis.

Fundurinn verður haldin í Hliðskjálf þriðjudaginn 19. október nk. kl. 20:00.Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands verður með framsögu á fundinum. Einnig munu Gunnar Arnarson og Hulda Gústafsdóttir, hrossaútflytjendur, upplýsa menn um horfur á útfluttningi hrossa í haust. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands