Haustfjarnám 2021- Þjálfaramenntun 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ

13. september 2021
Fréttir

Haustfjarnám 1. 2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 27. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Þjálfarastig LH eru nám þar sem hægt er að öðlast réttindi til þjálfunar í hestaíþróttum. Námið skiptist annarsvegar í almennan hluta sem ÍSÍ sér um og ber ábyrgð á og hinsvegar í sérgreinahluta sem LH ber ábyrgð á, en í samstarfi við  Háskólann á Hólum sem ber ábyrgð á faglegu innihaldi námsefnis sem eru sértækir fyrir íþróttagreinina.

Þjálfarastig LH, sérgreinahluta, er hægt að taka með því að sækja námskeið í knapamerki 1-5. Til að ljúka almenna hluta ÍSÍ þarf að klára viðeigandi námskeið hjá ÍSÍ. Skila þarf inn staðfestingu að afloknum námskeiðum bæði knapamerkja og ÍSÍ hluta til skrifstofu LH eða á netfangið lh@lhhestar.is

Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt til fjölda ára og þátttakendur komið frá mörgum íþróttagreinum. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 34.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Gjaldið á 3. stig er kr. 40.000.- Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. 

Skráning fer fram á sportabler: www.sportabler.is/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið, t.d. „Námskeiðsgjald á 1. stig“, og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460- 1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is 

Sjá nánar um Þjálfarastig LH