Hagyrðingakvöld í andyri Rangárhallarinar 18.mars

18. mars 2011
Fréttir
 Föstudagskvöldið 18.mars verður hagyrðingakvöld í anddyri Rangárhallarinar á Hellu. Þjóðþekktir hagyrðingar mæta þar til að kveða vísur og annað skemmtilegt.  Föstudagskvöldið 18.mars verður hagyrðingakvöld í anddyri Rangárhallarinar á Hellu. Þjóðþekktir hagyrðingar mæta þar til að kveða vísur og annað skemmtilegt. Þeir sem mæta verða Pétur læknir, Jóhannes frá Gunnarsstöðum, Reynir Hjartarson ásamt fleirum. Stjórnandi verður Magnús Halldórsson Hvolsvelli. Allir þeir sem gaman hafa af kveðskap ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara. Hefst skemmtunin kl 20:00 og er miðaverði stillt í hóf eða 1500 kr á mann og frítt fyrir 12 ára og yngri.
 
Rangárhöllin