Hádegisfundur ÍSÍ og HÍ

12. febrúar 2013
Fréttir
Afreksíþróttir barna og unglinga- hvað ræður, efniviður eða líkamlegur þroski? Mánudaginn 18. febrúar munu ÍSÍ og Íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ standa í sameiningu fyrir hádegisfundi í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal og hefst fundurinn kl.12:10.

Afreksíþróttir barna og unglinga- hvað ræður, efniviður eða líkamlegur þroski? 

Mánudaginn 18. febrúar munu ÍSÍ og Íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ standa í sameiningu fyrir hádegisfundi í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal og hefst fundurinn kl.12:10.  Þar mun Tomas Peterson prófessor í  íþróttafélagsfræði við Háskólann í Malmö flytja erindi um rannsóknir sínar á getu- og aldurstengdum árangri unglinga, með tilliti til efniviðar og aldurs- og fæðingadaga þeirra. Tomas hefur gert margvíslegar rannsóknir í samvinnu við sænska knattspyrnusambandið, sveitafélög og skólayfirvöld.

Hann hefur m.a. sýnt fram á að þjálfarar sem telja sig hafa fundið mikið efni á ákveðnum tímapunkti fundu í raun bráðþroska ungling.  Hann mun svara fyrirspurnum úr sal varðandi öll álitamál tengd fyrirlestrinum og tengdum málum s.s. getuskiptingu, aldursskiptingu ofl.  

Fyrirlesturinn fer fram á ensku, verður tekinn upp og verður aðgengilegur á netinu. Skráning fer fram á skraning@isi.is

Aðgangur er ókeypis.