Gullmótið 2010

30. júní 2010
Fréttir
Gullmótið í hestaíþróttum verður haldið helgina 3. - 4. júlí á félagssvæði Fáks, Víðidal. Ölgerðin er stærsti styrktaraðili mótsins og mun Barki gefa keppendum í fyrsta sæti í öllum greinum Marstall fóðurpoka. Mikill áhugi er fyrir mótinu og heyrst hefur að hópur af erlendum gestum líti í dalinn á meðan á móti stendur. Gullmótið í hestaíþróttum verður haldið helgina 3. - 4. júlí á félagssvæði Fáks, Víðidal. Ölgerðin er stærsti styrktaraðili mótsins og mun Barki gefa keppendum í fyrsta sæti í öllum greinum Marstall fóðurpoka. Mikill áhugi er fyrir mótinu og heyrst hefur að hópur af erlendum gestum líti í dalinn á meðan á móti stendur. Bjössi veitingasali í Reiðhöllinni verður með kveikt á grillinu báða dagana. Stefnt er að því að sýna leikinn Argentína-Þýskaland á breiðtjaldi í  veitingasölu Reiðhallarinnar klukkan 14:00 á laugardag og verða ýmis tilboð í gangi á meðan á leik stendur.

Ráslistar verða birtir seint í kvöld eða strax í fyrramálið. Sameina þurfti barna og unglingaflokk bæði í tölti og fjórgangi. Eins verður bara einn fullorðinsflokkur í öllum greinum.

Meðfylgjandi er dagskrá* mótsins:

Laugardagur 3. júlí 2010

10:00    T2    opinn flokkur
10:15    Fjórgangur    unglingar
11:10    Fjórgangur    ungmenni
11:45    Fjórgangur    opinn flokkur
    MATARHLÉ
13:30    Fimmgangur    ungmenni
14:00    Fimmgangur    opinn flokkur
14:50    tölt    ungmenni
15:10    tölt    opinn flokkur
16:10    tölt    unglingar
16:45    gæðingaskeið    opinn flokkur

Sunnudagur 4. júlí 2010

12:00    Sölusýning
13:00    Fimmgangur    Ungmenni
13:30    Fimmgangur    Opinn flokkur
14:00    Fjórgangur    Ungmenni
14:30    Fjórgangur    Opinn flokkur
15:00    Fjórgangur    Unglingar
15:30    T2    Opinn flokkur
15:45    Tölt    Unglingar
16:10    Tölt    Ungmenni
16:35    Tölt    Opinn flokkur

* Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar