Guðmar Þór Péturs með sýnikennslu

03.01.2012
Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu fimmtudaginn 5. jan í nýja Gusti í reiðhöllinni Hamraenda 16-18 ath enginn aðgangseyrir. Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu fimmtudaginn 5. jan í nýja Gusti í reiðhöllinni Hamraenda 16-18 ath enginn aðgangseyrir.
Guðmar Þór hefur eins og margir þekkja rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar á íslenskum hestum, auk þess að kynna sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.

Í sýnikennslunni mun Guðmar fjalla um skipulag þjálfunar í upphafi árs og áframhaldandi þjálfun. Einnig mun hann fjalla um líkamsbeytingu og formun, í tengslum við grein sem birtist í 7.tölublaði Eiðfaxa 2010 um þjálfun á stöngum. Auk þess mun Guðmar miðla því sem honum er helst hugleikið í reiðmennsku þessa dagana.

Guðmar mun bjóða upp á para eða einkatíma á þriðjudags og fimmtudagskvöldum nú í janúar í reiðhöllinni Hamraenda.

Hægt verður að panta tíma í reiðkennslu hjá Guðmari á staðnum eða í síma 8966726 eða netfangið gudmarp@gudmar.com.

Allir Gustarar og Andvarafélagar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta enginn aðgangseyrir og hefst hún stundvíslega klukkan 20.00.