Góður árangur í Knapamerkjaprófum

01. mars 2011
Fréttir
Föstudaginn 25.feb.sl voru haldin stöðupróf í grænu og gulu knapamerki í reiðhöll Sleipnis þar sem 11 knapar þreyttu verkleg próf. Föstudaginn 25.feb.sl voru haldin stöðupróf í grænu og gulu knapamerki í reiðhöll Sleipnis þar sem 11 knapar þreyttu verkleg próf. Skemmst er frá því að segja að allir náðu prófi. Reiðkennari var Þorvaldur Árni Þorvaldsson og prófdómari Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari en hún er, að öðrum ólöstuðum, reynslumesti reiðkennari landsins í knapamerkjakennslu. Við erum stolt af þessum árangri og óskum öllum sem þreyttu próf til hamingju!
 
Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Sleipnis