Gobbedí gobb – Hestadagar framundan!

26. mars 2012
Fréttir
Borgarbúar kynnast hestinum Dagana 29. mars – 1. apríl verða Hestadagar í Reykjavík haldnir hátíðlegir og margt spennandi í spilunum þessa daga í borginni. Það er Landssamband hestamannafélaga í samvinnu við Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu og hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að viðburðinum.  Borgarbúar kynnast hestinum Dagana 29. mars – 1. apríl verða Hestadagar í Reykjavík haldnir hátíðlegir og margt spennandi í spilunum þessa daga í borginni. Það er Landssamband hestamannafélaga í samvinnu við Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu og hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sem standa að viðburðinum.  Borgarbúar fá nú tækifæri til að kynnast íslenska hestinum í nærmynd.
Laugardagurinn 31. mars verður helgaður hestinum í Ráðhúsi Reykjavíkur og munu hestar og hestamenn verða áberandi í miðbænum þennan dag.  
Boðið verður upp á hestateymingar við Ráðhúsið, fyrirlestrar af ýmsum toga um hestinn, sögu hans og atferli. Línudans verður kynntur og gestum og gangandi boðið að læra nokkur spor. Dagskráin í Ráðhúsinu endar svo á því að Helgi Björns tekur nokkur vel valin lög. 
Um kvöldið halda áhugasamir svo á einstaka töltkeppni í Skautahöllinni í Laugardal, þar sem „Þeir allra sterkustu“ etja kappi í tölti á ís. 
Hápunktur laugardagsins er SKRÚÐREIÐ um það bil 150 hesta frá Vatnsmýrarvegi, upp á Skólavörðuholt og niður Skólavörðustíginn og Bankastrætið, svo að Austurvelli og eftir Tjarnargötu inn í Hljómskálagarð og endað á sama stað og byrjað var við Vatnsmýrarveg.  

Sunnudagurinn er svo helgaður æskulýðnum í hestamennskunni en sýningin Æskan og hesturinn hefur gengið í mörg mörg ár og þar leiða saman hesta sína hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu. Ungir hestamenn sýna alls kyns kúnstir á fákum sínum í Reiðhöllinni í Víðidal og eru sýningar kl. 13 og kl. 16. Aðgangur er ókeypis og því borgar sig að mæta tímanlega! 

Íííííííhhhhhaaaaaa, sjáumst á Hestadögum í Reykjavík

Dagskrána í heild sinni má finna inn á www.icelandichorsefestival.is