Gluggar og Gler deildin: 4g

01. febrúar 2016
Hrafnhildur sigraði á Krafti í fyrra.

Takið frá fimmtudaginn 4 febrúar – Furuflísarfjórgangur í Gluggar og Gler deildinni

Nú er loks komið að því að keppni í Gluggar og Gler deildinni 2016 hefjist.  Æfingar hafa verið strangar hjá liðunum enda metnaðurinn mikill.  

Það er ljóst miðað við hestakostinn á æfingum að keppnin verður hörð.  Undanfarna daga hafa þjálfarar verið að velja hesta og knapa til keppni og hefur valið oft á tíðum verið erfitt og starf þjálfara því ekki endilega öfundsvert.

Hrafnhildur Jónsdóttir og Kraftur frá Keldudal eiga titil að verja en þau sigruðu fjórganginn í deildinni 2015.  Það verður spennandi að sjá hvort Hrafnhildur mætir með Kraftinn sinn.  

Á fimmtudaginn opnar húsið kl. 17:00 en kvöldið byrjar með opnunarhátíð kl. 18:20 og sjálf keppnin hefst  kl. 19:00.

Einvalalið Sprettara mun sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði.  Í boði verða m.a. eðalsúpa ala Sprettur, pizzur og margt annað. Ljóst er að enginn fer þyrstur eða svangur heim að kvöldi loknu

Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni.  Aðgangur er frír.

Ráslistar verða birtir á þriðjudaginn 2 febrúar.

Við minnum svo á fésbókarsíðuna og snapchat deildarinnar.  Endilega smellið like á viðburðin og bætið svo Áhugamannadeildinni sem vini á snappinu.


Hlökkum til að sjá ykkur öll.