Gluggar og Gler deildin 16. mars

10. mars 2017

Næsta mót í Áhugamannadeild Spretts – Gluggar og Gler deildinni verður hrikalega spennandi.  Í boði verður veisla fyrir áhorfendur þar sem keppt verður í tveimur greinum á einu kvöldi. 

Allir fimm knapar hvers liðs taka þátt í þessu kvöldi, þrír keppa í slaktaumatölti og tveir í fljúgandi skeiði í gengum höllina. 

Það eru Vífilfell sem styrkir slaktaumatöltið og Hraunhamar sem styrkir fljúgandi skeiðið. 

Veislan byrjar kl. 19:00 og húsið opnar kl 17:30.

Snillingarnir okkar í eldhúsi Spretts ætla at reiða fram dýrindis kótilettuhlaborð ásamt öðrum flottum veitingum. 

Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni.  

Aðgangur er frír

Við minnum svo á heimasíðu deildarinnar http://sprettarar.is/ahugamannadeild-spretts-gluggar-og-gler.  Farið er inná www.sprettarar.is og þar þrýst á glugga sem heitir Gluggar og Gler deildin.  Á síðunni er frábær fróðleikur um deildina, liðin, styrktaraðila ásamt myndum frá þeim keppnum sem farið hafa fram.