Gluggað í skýrslur

17. nóvember 2011
Fréttir
Árlega skila æskulýðsnefndir hestamannafélaganna inn ársskýrslum sínum til LH. Árlega skila æskulýðsnefndir hestamannafélaganna inn ársskýrslum sínum til LH.
Skýrslur þessar eru mikilvægt verkfæri og heimild í öllu okkar æskulýðsstarfi og eru foreldrar, æskulýðsnefndarmenn og aðrir áhugasamir um gott starf innan æskulýðsnefnda, hvattir til að lesa skýrslurnar og nýta þær og hugmyndirnar sem þar koma fram í sínu starfi. Þær eru margar hverjar alveg snilldarvel gerðar, bæði að útliti og innihaldi.

Það má gjarnan fylgja hér með og árétta það, að Æskulýðsbikar LH var í ár veittur hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ og ber skýrslan þeirra þeim gott vitni.

Smellið hér til að skoða skýrslur ársins 2011.