Gjármót laugardaginn 28.maí kl.14:00

26. maí 2011
Fréttir
Ferðanefnd Andvara boðar til hópreiðar sem fyrr segir, laugardaginn 28. maí, lagt verður af stað frá félagsheimili  Andvara kl.14:00. Ferðanefnd Andvara boðar til hópreiðar sem fyrr segir, laugardaginn 28. maí, lagt verður af stað frá félagsheimili  Andvara kl.14:00.

Hér er um að ræða hina árlegu veisluferð Andvarafélaga og annarra matar og gleðipinna, allir eru að sjálfsögðu velkomnir með, ungir sem aldnir.
Riðið verður sem leið liggur frá félagsheimilinu um Heimsenda inn í Heiðmörk og með Hjöllum í Hjalladal í Gjármót.
Áætlaður reiðtími er ca. 45mín hvora leið.
Í Gjármótum verður boðið upp á glóðar grilluð lambalæri með öllum þeim kræsingum sem við eiga og að sjálfsögðu  gegn vægu gjaldi. Einnig kjúklingur frá KFC fyrir þá sem það vilja.
Sumarið er komið og engin ástæða til að láta sig vanta í slíka ferð, það er spáð snjólausum og öskulausum degi.
Sjáumst  hress og kát.

Ferðanefnd Andvara.