Gæðingaveisla Sörla og Íshesta

16. ágúst 2011
Fréttir
Glæsilegt gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum 24.-27. ágúst. Mótið verður allt hið veglegasta með glæsilegum verðlaunum. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum. Glæsilegt gæðingamót verður haldið á Sörlavöllum 24.-27. ágúst. Mótið verður allt hið veglegasta með glæsilegum verðlaunum. Einn og einn verður inn á í einu og mun sína sitt prógram. Hitað verður upp í grillinu á kvöldin og allt gert til þess að öllum líði sem best í Hafnarfirðinum.

Skráning fer fram á netinu fimmtudaginn 18. ágúst – sunnudagsins 21. ágúst á netfangið; motanefnd@sorli.is
Þar þarf að koma fram kenntala knapa, is–númer hestsins og í hvaða grein á að keppa, senda skal á sama netfang staðfestingu um borgun. Skráningargjald er 3.000 krónur.
Flokkar í boði:
A flokkur opinn
A flokkur áhugamenn
B flokkur opinn
B flokkur áhugamenn
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt meistara
Tölt Opinn
Tölt áhugamenn
Tölt 21. árs og yngri
100 m. skeið
150 m. skeið
250 m. skeið

Taktu þessa daga frá og ekki láta þetta frábæra mót fram hjá þér fara, sjáumst á Sörlavöllum 24.-27.ágúst.

Mótanefnd Sörla