Gæðingakeppni/úrtaka Léttis

27. maí 2013
Fréttir
Gæðingakeppni Léttis/úrtaka fyrir fjórðungsmót á Hornafirði, verður haldin á Hlíðarholtsvelli 1-2 júní.

Gæðingakeppni Léttis/úrtaka fyrir fjórðungsmót á Hornafirði, verður haldin á Hlíðarholtsvelli 1-2 júní.

Keppt verður í:

  • A flokkur gæðinga - skráningargjald 3000 kr.
  • B flokkur gæðinga - skráningargjald 3000 kr.
  • Ungmennaflokkur - skráningargjald 2700 kr.
  • Unglingaflokkur - skráningargjald 2700 kr.
  • Barnaflokkur - skráningargjald 2700 kr.

Forkeppni fer fram á laugardag og úrslit á sunnudag. Dagskrá verður birt á fimmtudag.

Mótið er úrtaka fyrir fjórðungsmótið á Hornafirði í sumar og hafa hestamannafélögin Hringur á Dalvík og Grani á Húsavík óskað eftir að fá að taka þátt í úrtökunni hjá okkur.

3 dómarar dæma mótið.

Skráning er á http://skraning.sportfengur.com Henni lýkur á miðnætti miðvikudaginn 29. maí.

Mótanefnd Léttis.