Gæðingafimi annað kvöld

10. mars 2010
Fréttir
Næsta keppnisgrein í Meistaradeild VÍS er gæðingafimi. Keppnin verður á morgun fimmtudag í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir knapana. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Næsta keppnisgrein í Meistaradeild VÍS er gæðingafimi. Keppnin verður á morgun fimmtudag í Ölfushöllinni og hefst keppni klukkan 19:30. Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir knapana. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Það sem dómararnir horfa meðal annars á er hversu margar og erfiðar æfingar parið gerir og hvernig þær eru framkvæmdar, hvernig æfingarnar blandast við gangtegundir, flæði sýningarinnar, fjölhæfni og styrkleiki gangtegunda. Knapar þurfa að sýna að lágmarki þrjár gangtegundir og fimm fimiæfingar og er einungis ein skylduæfing, en hún er opinn sniðgangur á tölti. Lengd sýningar má vera að hámarki þrjár og hálf mínúta.

Það var Jakob S. Sigurðsson, Frumherja, sem sigraði greinina í fyrra á stóðhestinum Auð frá Lundum. Jakob mætir nú á nýjum hesti Blæ frá Hesti.
Viðar Ingólfsson, Frumherja, sigraði greinina 2008 á Tuma frá Stóra-Hofi og eru þeir félagar skráðir til leiks núna. Sigurður Sigurðarson, Lýsi, sem stendur efstur í einstaklingskeppninni mætir með glæsihryssuna Kjarnorku frá Kálfholti. Valdimar Bergstað, Málning, verður á Leikni frá Vakurstöðum en þeir félagar enduðu í öðru sæti í fyrra. Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Hestvit, kemur með Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu en þau voru í úrslitum í greininni í fyrra. Annar úrslitaknapi frá því í fyrra Sigurbjörn Bárðarson, Lífland, mætir með nýjan hest Jarl frá Mið-Fossum en þeir félagar voru í A-úrslitum í slaktaumatölti um daginn.
Guðmundur Björgvinsson, Top Reiter, mætir á Hljóm frá Höfðabakka en þeir félagar voru í A-úrslitum í fjórgangi um daginn. Þórdís Erla Gunnarsdóttir, Auðsholtshjáleiga, mætir með Ösp frá Enni en þær stöllur urðu í öðru sæti í slaktaumatöltinu.

Miðað við þá gæðinga sem skráðir eru til leiks má gera ráð fyrir mörgum stórglæsilegum sýningum annað kvöld. Verð á aðgöngumiða er 1.500 krónur og 500 krónur fyrir 12 ára og yngri og verða miðar seldir við innganginn annað kvöld.

Meðfylgjandi eru ráslistar í gæðingafimi:


Nr    Knapi    Lið    Hestur
1    Sigurbjörn Bárðarson    Lífland    Jarl frá Mið-Fossum
2    Sigurður V. Matthíasson    Málning    Kall frá Dalvík
3    Valdimar Bergstað    Málning    Leiknir frá Vakurstöðum
4    Hinrik Bragason    Árbakki / Hestvit    Náttar frá Þorláksstöðum
5    Daníel Jónsson    Top Reiter
6    Bylgja Gauksdóttir    Auðsholtshjáleiga    Leiftur frá Búðardal
7    Lena Zielinski    Lýsi    Gola frá Þjórsárbakka
8    Ævar Örn Guðjónsson    Lífland    Tónn frá Melkoti
9    Þorvaldur Á. Þorvaldsson    Top Reiter    Gola frá Prestsbakka
10    Hulda Gústafsdóttir    Árbakki / Hestvit    Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu
11    Jakob S. Sigurðsson    Frumherji    Blær frá Hesti
12    Ragnar Tómasson    Lífland    Brimill frá Þúfu
13    Viðar Ingólfsson    Frumherji    Tumi frá Stóra-Hofi
14    Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Kjarnorka frá Kálfholti
15    Þórdís Erla Gunnarsdóttir    Auðsholtshjáleiga    Ösp frá Enni
16    Guðmundur Björgvinsson    Top Reiter    Hljómur frá Höfðabakka
17    Eyjólfur Þorsteinsson    Málning    Ósk frá Þingnesi
18    Artemisia Bertus    Auðsholtshjáleiga    Hugsun frá Vatnsenda
19    Ólafur Ásgeirsson    Frumherji    Jódís frá Ferjubakka
20    Teitur Árnason    Árbakki / Hestvit    Naskur frá Búlandi
21    Halldór Guðjónsson    Lýsi    Baldvin frá Stangarholti