Fyrsti dagur Hestadaga í Reykjavík á morgun

28. mars 2012
Fréttir
Hestadagar í Reykjavík hefjast formlega fimmtudaginn 29.mars. Dagskráin á fimmtudaginn hefst með því að farið verður í reiðtúr um Hafnafjarðarhraun kl. 10:00.  Hestadagar í Reykjavík hefjast formlega fimmtudaginn 29.mars. Dagskráin á fimmtudaginn hefst með því að farið verður í reiðtúr um Hafnafjarðarhraun kl. 10:00. 

Farið verður frá hestamiðstöð Íshesta í Hafnarfirði, og þar verður hægt að leigja hesta fyrir alla, byrjendur jafnt sem lengra komna. Að reiðtúrnum loknum verður boðið upp á kjötsúpu í hestamiðstöðinni. Pantanir og frekari upplýsingar fást hjá Landssambandi hestamannafélaga á netfanginu lh@isi.is   Á fimmtudeginum verður jafnframt landsmótssvæðið 2012 skoðað en í sumar fer Landsmót hestamanna fram á mótssvæði hestamannafélagsins Fáks í Víðidal. Heilmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir á mótssvæðinu en búist er við allt að 15.000 gestum á mótið í sumar.

Formleg setning Hestadaga í Reykjavík fer fram að kvöldi fimmtudags í verslun Líflands að Lynghálsi 3 og hefst klukkan 18:00. Þar verður boðið upp á léttar veitingar, tónlistaratriði og  nýjasta tíska í reiðfötum sýnd ásamt því að leynihestur lætur sjá sig.

Heimasíða Hestadaga í Reykjavík er www.hestadagar.is