Fundur um aukið samstarf LH og Háskólans á Hólum

23. nóvember 2023

Í vikunni voru lögð drög að samkomulagi á milli LH og Hólaskóla um stóraukið samstarf sem miðar að auknum stuðningi við menntun afreksknapa landsliðanna og hæfileikamótunarhóp LH. Er stefnt að því að samningur verði kláraður, kynntur og undirritaður í tengslum við menntadag Landsliðsins 16. desember næstkomandi.

 „Þetta var frábær fundur sem verður án efa upphafið að stórauknu samstarfi LH og Hólaskóla. Það er verðmætt fyrir okkur að ná að auka samstarfið enn frekar og teljum að svona samstarf geti nýst báðum aðilum mjög vel. Við hjá LH erum stöðugt að setja markið hærra og viljum ávallt vera í fararbroddi þegar kemur að menntun okkar afreksfólks. Aukið samstarf við Hólaskóla er stór og mikilvægur þáttur í því að okkar mati. Þá er það von okkar og trú að nemendur, kennarar og skólinn sjálfur muni einnig njóta góðs af samstarfinu og vera virkari þáttakandi í metnaðarfullu afreksstarfi LH“ segir Guðni Halldórsson formaður LH.

Hólmfríður Sveinsdóttir hjá Háskólanum á Hólum tók undir þessi orð Guðna og sagði: ,,Bætt umgjörð starfsins í kringum afreksknapana kallar á aðkomu fjölbreyttra aðila, þar á meðal háskólasamfélagsins. Háskólinn á Hólum hefur í gegnum tíðina átt í afar farsælu samstarfi við LH og landslið Íslands í hestaíþróttum og hafa margir af okkar helstu afreksknöpum og þjálfurum menntað sig í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. Háskólinn á Hólum hefur verið brautryðjandi í námi og rannsóknum á sviði reiðmennsku á íslenska hestinum og hefur það að markmiði að efla námið og rannsóknirnar enn frekar. Markvissara og nánara samstarf við LH og íslenska landsliðið er lykilþáttur í þeirri vegferð skólans.“