Fundur Landsliðsnefndar LH - Heimir Hallgrímsson fyrirlesari

13. mars 2017
Fréttir

Landsliðsnefnd LH heldur mjög áhugaverðan fund mánudaginn 13.mars kl.17:30 í Samskipahöllinni í Spretti þar sem kynntur verður lykillinn að vali íslenska landsliðsins - Leiðin að gullinu! 

Fyrirlesari kvöldsins verður hinn magnaði landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, Heimir Hallgrímsson.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis!