Fundaröð

12. febrúar 2014
Fréttir
Almennir fundir í fundaröð Fagráðs um málefni hestamanna hefjast í næstu viku. Með fulltrúum Fagráðs þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og Fagráðs og Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur ritara Fagráðs, verður Haraldur Þórarinsson formaður Landsambands hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundarins.

Almennir fundir í fundarröð Fagráðs  um málefni hestamanna hefjast í næstu viku. Með fulltrúum Fagráðs þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og Fagráðs og Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur ritara Fagráðs verður Haraldur Þórarinsson formaður Landsambands hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundarins.

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum og hefjast kl 20:30

  • Mánudaginn 17. feb - Hlíðarbær, Eyjarfirði
  • Þriðjudaginn 18. feb - Tjarnarbær, Sauðárkróki
  • Miðvikudaginn 19. feb - Salnum að Húnabraut 13 á Blönduósi

Næstu fundir í fundarröðini verða kynntir til sögunar fljótlega.