Fundaherferð Æskulýðsnefndar LH

20. febrúar 2017
Fréttir

Föstudaginn 24.febrúar kl. 18.00 verður fundur fyrir félögin á Suðvesturhorninu hjá Sörla í Reiðhöllinni í Hafnarfirði. Þetta er annar fundurinn í fundarröð nefndarinnar en fyrsti fundurinn var haldinn á Akureyri sl. laugardag og var hann vel sóttur.

Tilgangur fundanna er að efla tengsl nefndarinnar við það fólk sem vinnur að og hefur áhuga á æskulýðsmálum í hestamannafélögunum og einnig að kynna starfsemi nefndarinnar og ræða almennt um æskulýðsmál og það sem brennur á fólki.

Eins og fram kom á Landsþinginu í Stykkishólmi í haust mun áhersla sambandsins vera á nýliðun og æskulýðsmál og er þessi fundaferð liður í því. Það er von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta á fundina sem eru opnir öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf.

Á fundinn í Hafnarfirði er stefnt fulltrúum félaganna á Suðvesturhorninu, þó vitanlega séu allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Þessi félög eru:

Sörli
Adam
Hörður
Fákur
Sprettur
Sóti
Máni
Brimfaxi

Svo hægt sé að gera sér grein fyrir fjölda gesta langar mig að biðja ykkur að senda mér svar til baka hversu margir hugsanlega kæmu frá ykkar félagi - helga@isam.is 

Í framhaldinu verða síðan fundir á Vesturlandi, Suðurlandi, Suðausturlandi og Austurlandi og mun fundartími þessara funda verða auglýstur þegar nær dregur. 

Æskulýðsnefnd LH hvetur áhugasama til þess að mæta og sækja góðan fund um málefni æskulýðsins í hestamennskunni. Það er stöðugt þörf á því að halda vel á spöðunum í þessum málaflokki. 

Vinsamlega auglýsið fundinn innan ykkar félags. 

 

Kær kveðja

F. h. Æskulýðsnefndar LH

Helga B Helgadóttir

s. 8202313