Fundaherferð heldur áfram

05. september 2011
Fréttir
Vindheimamelar 2011. Mynd: HKG
Landsmótsnefndin heldur áfram fundaherferð sinni í þessari viku og verður annað kvöld 6. september kl 20:30 á Hvanneyri. Landsmótsnefndin heldur áfram fundaherferð sinni í þessari viku og verður annað kvöld 6. september kl 20:30 á Hvanneyri.
Suðurlandsfundurinn verður svo í Hvoli á Hvolsvelli þann 8. september kl. 20:00. Föstudagskvöldið 9. september verður svo fundað hjá hestamannafélaginu Fáki í Reykjavík kl. 20:00.

Síðasti fundurinn í fundalotunni verður svo þriðjudagskvöldið 13. september kl. 20:00 í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi.

Sem fyrr hvetur nefndin og stjórn LH alla hestamenn að fylkjast á fundarstaðina og taka þátt í málefnalegum og skemmtilegum umræðum um málefni landsmótanna.