Fréttir af Íslandsmóti Sörlastöðum

26. ágúst 2010
Fréttir
Rétt í þessu var keppni í slaktaumatölti að hefjast á Íslandsmóti.  Mikið af góðum hestum og knöpum eru skráð til leiks og búast má við mörgum glæsisýningum. Rétt í þessu var keppni í slaktaumatölti að hefjast á Íslandsmóti.  Mikið af góðum hestum og knöpum eru skráð til leiks og búast má við mörgum glæsisýningum.

Kl. 18:30 hefst svo keppni í gæðingaskeiði. Um 50 knapar eru skráðir til leiks þar og skeiðbrautin á Sörlavöllum er í toppstandi.  
Mikils er því að vænta og fólk er hvatt til að koma á svæðið og sjá sjónarspilið þegar okkar fremstu knapar keppa í þessari frábæru íþróttagrein. Keppni í gæðingaskeiði gengur hratt fyrir sig verður lokið á um klukkutíma. Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni keppni.