Frestur til framboðs stjórnar LH til 30.sept.

27. september 2016

Athygli er vakin á því að frestur til framboðs stjórnar Landssambands hestamannafélaga rennur út föstudaginn 30.september.

Skv. Lögum og reglum LH;
„1.4.1 Kosning stjórnar
Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH.  Tilkynning um framboð til embættis formanns eða til stjórnar LH skal berast kjörnefnd minnst hálfum mánuði fyrir landsþing LH.“

Tilkynningar um framboð skulu berast til Kjörnefndar, hana skipa;

Margeir Þorgeirsson – vodlarhestar@gmail.com
Helga Claessen – helgacl@simnet.is
Þórður Ingólfsson – thoing@centrum.is