Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga

22. september 2020
Fréttir

62. landsþing LH verður haldið í Reykjavík 16. til 17. október 2020. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing. Framboðsfrestur er til miðnættis 2. október.

Sambandsstjórn skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar.

Kjörnefnd skipa:

Margeir Þorgeirsson formaður (vodlarhestar@gmail.com)
Helga Claessen (helgacl@simnet.is)
Þórður Ingólfsson (thoing@centrum.is)

Samkvæmt lögum og reglum LH, (grein 1.4.1 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Eitt nýtt framboð hefur einnig borist.

Framboð til stjórnar LH 2020-2022:

Til formanns:

Guðni Halldórsson (nýtt framboð)
Ólafur Þórisson, núverandi gjaldkeri

Til aðalstjórnar:

Ágúst Hafsteinsson núverandi meðstjórnandi
Eggert Hjartarson núverandi meðstjórnandi
Siguroddur Pétursson núverandi varastjórnarmaður, gefur kost á sér í aðalstjórn
Sóley Margeirsdóttir núverandi varaformaður
Stefán Logi Haraldsson núverandi meðstjórnandi

Til aðal- og varastjórnar:

Ómar Ingi Ómarsson núverandi varastjórnarmaður, gefur kost á sér í aðalstjórn og til vara til varastjórnar

Til varastjórnar:

Lilja Björk Reynisdóttir núverandi varastjórnarmaður

Eftirtaldir gefa EKKI kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu:

Lárus Ástmar Hannesson núverandi formaður
Oddrún Ýr Sigurðarsdóttir núverandi ritari
Þórdís Arnardóttir núverandi varastjórnarmaður
Rósa Birna Þorvaldsdóttir núverandi varastjórnarmaður

Með kveðju,
kjörnefnd LH.