Fræðslukvöld ÍSÍ

11. september 2009
Fréttir
Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík. Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta.  Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00. 
Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám.  Fræðslan getur t.d. í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun.
Skráning er á namskeid@isi.is og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið.
Námskeiðsgjald er kr. 3.500.- og greiðist fyrir upphaf námskeiðs.
Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

Skipulag fræðslukvölda á haustönn 2009 (með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar):

Fim. 17. sept. á Akureyri.  Næring íþróttafólks/lyf og íþróttir

Fim. 24. sept. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)

Fim. 8. okt. á Akureyri.  Íþróttameiðsl.

Fim. 15. okt. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti)

Fim. 22. okt. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)

Fim. 29. okt. í Reykjavík.  Starfsemi líkamans

Fim. 5. nóv. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti)

Fim. 12. nóv. í Reykjavík.  Íþróttasálfræði

Fim. 19. nóv. á Akureyri.  Siðfræði/forvarnir.

Fim. 26. nóv. í Reykjavík.  Siðfræði/forvarnir


Fyrirlesarar/kennarar á framangreindum fræðslukvöldum verða m.a. eftirtaldir:

Rúnar Andrason            Sálfræðingur
Hafrún Kristjánsdóttir        Sálfræðingur
Fríða Rún Þórðardóttir         Næringarfræðingur
Örvar Ólafsson            Verkefnisstjóri hjá ÍSÍ
Stefán Ólafsson            Sjúkraþjálfari
Viðar Sigurjónsson        Sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ