Fræðslufyrirlestur Funa

24. nóvember 2011
Fréttir
Fimmtudagskvöldið 1. desember verður fræðslufyrirlestur Funa haldinn að Funaborg kl. 20:30, húsið opnar kl. 20:00. Fimmtudagskvöldið 1. desember verður fræðslufyrirlestur Funa haldinn að Funaborg kl. 20:30, húsið opnar kl. 20:00.

Að þessu sinni verður það Brynjar Skúlason bóndi í Hólsgerði sem mun fjalla um BSc ritgerð sína í hestafræðum. Ritgerðin ber heitið Vöxtur og þroski íslenska hestsins og mun Brynjar fjalla um:
•         Hvernig hestar vaxa eftir mismunandi skrokkhlutum
•         Árstíðabundnar sveiflur í vexti
•         Áhrifaþætti vaxtar (fóðrun, erfðir, steinefni ofl.)
•         Hvernig íslenski hesturinn hefur stækkað undanfarin ár
•         Frekari rannsóknir ofl.

Gunnbjörn Rúnar Ketilsson mun svo vera með kynningu fyrir áhugasama á Forever Living vörunum. eftir fyrirlesturinn. En vörurnar hafa reynst vel við hinum ýmsum kvillum hesta.
Frítt er inn á fyrirlesturinn og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.
Allir velkomnir
 
Fræðslunefnd Funa