Frábær árangur íslenska landsliðsins á HM

12. ágúst 2019
Fréttir

Heimsmeistaramóti íslenska hestsins lauk í gær í Berlín. Íslendingar hlutu sex gullverðlaun af níu í flokki fullorðinna, eitt gull í flokki ungmenna og fjögur af sex kynbótahrossum sem Íslendingar sendu á mótið urðu efst í sínum flokki.

Jóhann Rúnar Skúlason varð þrefaldur heimsmeistari á hesti sínum Finnboga frá Minni-Reykjum, þeir unnu tölt, fjórgang og samanlagðar fjórgangsgreinar. Jóhann fékk einnig verðlaun fyrir bestu reiðmennskuna á mótinu.

Íslenska liðið var með fullt hús í skeiðgreinum, Teitur Árnason og Dynfari frá Steinnesi eru heimsmeistarar í gæðingaskeiði, Guðmundur Björgvinsson og Glúmur frá Þóroddsstöðum eru heimsmeistarar í 250m. skeiði og Konráð Valur Sveinsson og Losti frá Ekru eru heimsmeistarar í 100m. skeiði. Í flokki ungmenna urðu Benjamín Sandur Ingólfsson og Messa frá Káragerði heimsmeistarar í gæðingaskeiði. Allir ofantaldir knapar unnu sér þar með þátttökurétt á næsta heimsmeistaramóti sem verður haldið í Herning í Danmörku eftir tvö ár.

Bergþór Eggertsson og Besti frá Upphafi unnu til bronsverðlauna í gæðingaskeiði, Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Koltinna frá Varmalæk urðu í öðru sæti í tölti í flokki ungmenna og í þriðja til fimmta sæti í fjórgangi ungmenna, jöfn þeim urðu Hákon Dan Ólafsson og Stirnir frá Skriðu ásamt hinni dönsku Kristine B. Jörgensen og Tý frá Þverá. Ásdís Ósk og Koltinna urðu einnig í öðru sæti í samanlögðum árangri í fjórgangsgreinum.

Árni Björn Pálsson og Flaumur frá Sólvangi voru efstir inn í úrslit í fjórgangi en enduðu í fimmta sæti. Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá Strandarhöfði voru efstir inn í b-úrslit í fjórgangi en enduðu í 7. sæti á eftir Irenu Reber og Þokka frá Efstu-Grund.

Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey voru þriðju inn í a-úrslit í slaktaumatölti en enduðu í 5. sæti, heimsmeistari í slaktaumatöli varð hin danska Julie Christiansen og Stormur frá Hemlu.

Olil Amble og Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum voru efst inn í úrslit í fimmgangi en enduðu í 6. sæti, Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sproti frá Innri-Skeljabrekku urðu í fimmta sæti en Jón Stenild og Eilífur frá Teglborg frá Danmökru unnu sannfærandi sigur og eru heimsmeistarar í fimmgangi. Magnús Skúlason og Valsa frá Brösarpsgården urðu heimsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum en þau keppa fyrir Svíþjóð.

Íslensku hrossin stóðu sig vel í kynbótasýningu mótsins. Mjallhvít frá Þverholtum varð efst í flokki fimm vetra hryssna, knapi á Mjallhvíti var Þórður Þorgeirsson. Eyrún Ýr frá Hásæti varð efst í flokki sex vetra hryssna, knapi á Eyrúnu var Eyrún Ýr Pálsdóttir, Elja frá Sauðholtum var efst í flokki sjö vetra hryssna og var einnig hæst dæmda hross mótsins, knapi á Elju var Árni Björn Pálsson, Spaði frá Barkarstöðum var efstur í flokki sex vetra hesta, knapi á Spaða var Helga Una Björnsdóttir. Hamur frá Hólabaki varð annar í flokki fimm vetra stóðhesta, knapi á Hami var Tryggvi Björnsson.

Íslenska liðið var stigahæsta liðið á mótinu og hlaut að launum liðabikarinn.

Þetta er besti árangur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum frá 2007 og ef öll gull eru talin í flokki ungmenna og kynbótahrossa hefur árangurinn aldrei verið betri því liðið fór heim með ellefu gullverðlaun alls.