Forvarnar- og fræðslufyrirlestur hjá Funa

26. nóvember 2010
Fréttir
Haldinn verður forvarnar- og fræðslufyrirlestur að Funaborg sunnudaginn 28 nóvember. Fulltrúi frá VÍS kemur og verður með kynningu á tryggingum fyrir hesta og hestamenn. Haldinn verður forvarnar- og fræðslufyrirlestur að Funaborg sunnudaginn 28 nóvember. Fulltrúi frá VÍS kemur og verður með kynningu á tryggingum fyrir hesta og hestamenn.

Elfa Ágústsdóttir dýralæknir fer yfir helstu slysagildrur í hesthúsum, hvers ber að varast þegar hestar eru teknir á hús og hvað er gott að eiga til í sjúkrakassanum.

Lífland mætir á svæðið og verður með öryggisbúnað til sýnis.

Húsið opnar kl. 15:30 og fyrirlestrar hefjast kl. 16:00, opnað verður fyrir umræður að fyrirlestrum loknum.

Hestamannafélagið Funi.