Forsala aðgöngumiða hafin á LM 2010 20-25% afsláttur

26. febrúar 2010
Fréttir
Forsala aðgöngumiða er hafin á Landsmót hestamanna 2010, sem fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27.júní – 4.júlí. Forsalan fer fram rafrænt á slóðinni www.landsmot.is. Söluferlið er einfalt og er væntanlegur landsmótsgestur leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref. Forsala aðgöngumiða er hafin á Landsmót hestamanna 2010, sem fer fram á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 27.júní – 4.júlí. Forsalan fer fram rafrænt á slóðinni www.landsmot.is. Söluferlið er einfalt og er væntanlegur landsmótsgestur leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref. Afsláttur er verulegur sé miði keyptur í forsölu, allt að 25%, og er með þessu móti hægt að spara bæði fé og fyrirhöfn. Unnt er að kaupa vikupassa og helgarpassa í forsölu. Lægra gjald er greitt fyrir unglinga 14 – 17 ára og ekkert fyrir börn 13 ára og yngri. Einnig er hægt að kaupa stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni í forsölu.

Forsölunni lýkur 1.maí 2010 og hækkar miðaverð eftir það. Hver miði sem keyptur er í forsölu gildir einnig sem miði í happdrættispotti Landsmóts og samstarfsaðila. Um hver mánaðarmót verður dregið um veglega vinninga, til að mynda tvo vikupassa á Landsmót, leikhúsmiða fyrir tvo í boði VÍS, beisli og DVD diska frá versluninni LÍFLANDI.