Forsala aðgöngumiða á Þeir allra sterkustu

10. apríl 2019
Fréttir

Forsala aðgöngumiða á „Þeir allra sterkustu“ fer fram í verslun Líflands, Lynghálsi 3 í Reykjavík og hjá Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Miðaverð er 3.500 kr.

Á Þeir allra sterkustu mætast landsliðsknaparnir okkar í úrslitum í fjórgangi, fimmgangi og tölti og í flugskeiði. U21 landsliðshópurinn verður með glæsilegt sýningaratriði, einnig koma fram toppstóðhestar sem allir verða í pottinum í stóðhestaveltu landsliðsnefndar.

Sala happdrættismiða til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum fer fram í Líflandi og hjá Baldvini og Þorvaldi og kostar miðinn 1000 kr.

Glæsilegir vinningar eru í happdrættinu, m.a.:

  • Hnakkur frá Hrímni
  • Ferð með Vita á HM í Berlín
  • Rúm frá Vogue fyrir heimilið