Formenn þakka fyrir sig

13. janúar 2015
Sveinn og Lárus

Það var ánægjulegt að sjá hversu víða hestamenn komu að og hversu vel þeir skemmtu sér á sameiginlegri Uppskeruhátíð Félags hrossabænda og Landssambands hestamannafélaga á veitingastaðnum Gullhömrum í Grafarholti um síðustu helgi. Bæði félögin rifjuðu upp hápunkta síðasta árs og veittu viðurkenningar auk þess var Einari Öder Magnússon heiðraður með Gullmerkinu sem er æðsta viðurkenning  LH.

Ástæða er til að þakka öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar. Að öðrum ólöstuðum ber að þakka sérstaklega þeim Magnúsi Benediktssyni  og Óskari Nikulássyni fyrir þeirra framlag við gerð myndskeiða með hápunktum síðasta árs og myndbands með kveðju frá afreksmanninum Einari Öder Magnússyni.

Okkur er strax farið að hlakka til næstu hátíðar.

Með bestu kveðju og fyrir hönd okkar félaga,

Sveinn Steinarsson form FHB og Lárus Hannesson form  LH.