Formannaskipti hjá Létti

05. desember 2014
Léttir

Aðalfundur Léttis var haldinn 27. nóvember síðastliðinn og var fundurinn ákaflega vel sóttur.

Gengið til kosninga og byrjað var á að kjósa nýjan formann. Tveir menn voru í framboði þeir Hólmgeir Valdemarsson og Þorbjörn Guðrúnarson. Sigraði Hólmgeir kosninguna. Aðrir sem kosnir voru í aðalstjórn voru þeir Vignir Ingþórsson og Guðmundur Már Einarsson. Í varastjórn eru Andrea Hjaltadóttir, Camilla Hoj og Magnús Rúnar Árnason.

Úr stjórn gengu. 

Andrea Þorvaldsdóttir formaður

Björgvin  Helgason ritari

Hjalti Jón Sveinsson meðstjórnandi.

Öll hafa þau unnið afar farsælt starf í þágu félagsins og þeim hér þökkuð af alhug.

Með kveðju,

Hólmgeir Valdemarsson, formaður Léttis