Formannafundur LH 1. nóvember

26. september 2019
Fréttir

Formannafundur LH verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Fundurinn verður í E-sal á 3.hæð (fyrir ofan skrifstofu LH). 
Kaffiveitingar verða í boði í salnum, og léttar veitingar frá Café Easy eftir fundinn.

Seturétt eiga eftirtaldir, stjórn og varastjórn LH, formaður allra aðildarfélaga LH, formaður starfsnefnda LH, formaður Gæðingadómarafélagsins og Hestaíþróttadómarafélagsins. Auk fyrrnefndra eru boðaðir framkvæmdastjórar og/eða gjaldkerar félaganna sem og æskulýðsfulltrúar félaganna. Formaður félags tamningamanna og formaður járningamannafélagsins eiga einnig seturétt.

Formannafundir fjalla meðal annars um, málefni LH milli landsþinga, reikninga síðastliðins rekstrarárs, 8 mánaða uppgjör reikninga ársins, endurskoðaða rekstraráætlun og rekstraráætlun næsta árs, skýrslur stjórnar og starfsnefnda. Á formannafundum má ekki gera breytingar á lögum LH né kjósa stjórn.

Dagskrá fundarins verður auglýst eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn. 

Fundurinn hefst kl. 14:00

Reglur um formannafund má sjá http://www.lhhestar.is/is/um-lh/formannafundir 

Vefsvæði formannafundar 2019  https://www.lhhestar.is/is/um-lh/formannafundir/formannafundur-2019