Formannafundur Landssambands hestamannafélaga

05. október 2009
Fréttir
Ágætu formenn hestamannafélaganna! Formannafundur LH verður haldinn föstudaginn 6. nóvember n.k. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst fundurinn klukkan 10:00. Ágætu formenn hestamannafélaganna! Formannafundur LH verður haldinn föstudaginn 6. nóvember n.k. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst fundurinn klukkan 10:00. Bráðabirgðadagskrá:

1.    Skýrsla stjórnar, um verkefni síðasta árs
2.    Kynning á reikningum LH
       - ársreikningi 2008 og 8 mánaða uppgjöri 2009
3.    Starfið framundan
4.    Önnur mál

Áætluð fundarlok eru klukkan 17:00.

Nánari dagskrá verður send út síðar.
Skýrslur nefnda innan LH verða í fundargögnum.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku ykkar á fundinn í síma 514 4030 eða á tölvupóstfangið: lh@isi.is. Á fundinn eru boðaðir formenn allra hestamannafélaga innan LH, formenn nefnda LH, formenn Gæðingadómarafélagsins og Hestaíþróttadómarafélagsins, fyrrum formenn LH, ásamt stjórn og varastjórn LH.