Formannafundur - boðun

05. október 2015
Fréttir

Föstudaginn 6. nóvember verður formannafundur félaga LH haldinn í húsakynnum ÍSÍ við Engjaveg 6. Endanleg dagskrá verður kynnt í síðasta lagi tveimur vikum fyrir fundinn. Rétt til setu á fundinum eiga allir formenn aðildarfélaga LH, stjórn og varastjórn LH og formenn nefnda LH, Gæðingadómarafélagsins og Íþróttadómarafélagsins. Að auki gefst gjaldkerum hestamannafélaganna kostur á að sitja fundinn, samkvæmt samþykkt stjórnar LH. 

Fundarmenn tilkynni skrifstofu LH um þátttöku sína fyrir 1. nóvember 2015, með tölvupósti á netfangið lh@lhhestar.is eða símleiðis í síma 514 4030. 

Skrifstofa og stjórn LH