Fleiri hestar bætast við

16. mars 2011
Fréttir
Upptalning á þeim hestum sem mæta á stóðhestaveisluna í Rangárhöllinni laugardaginn 19.mars heldur áfram. Upptalning á þeim hestum sem mæta á stóðhestaveisluna í Rangárhöllinni laugardaginn 19.mars heldur áfram.

Má þar nefna Fursti  frá Stórahofi, Gautrekur frá Torfastöðum, Hringur frá Skarði, Kerúlf frá Kollaleiru, Byr frá Mykjunesi 2, Njáll frá Friðheimum, Seifur frá Prestsbakka, Spói frá Hrólfsstaðahelli ásamt þeim sem áður hafa verið taldir upp á undanförnum dögum. Nú er bara um að gera að ná sér í miða. Miðar eru seldir í forsölu í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippistofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík. Miðaverð er 2500kr og frítt fyrir 12 ára og yngri.

Rangárhöllin