Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

01. september 2011
Fréttir
Framundan er haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs. Hér má finna nánari upplýsingar um námið. Framundan er haustfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs. Hér má finna nánari upplýsingar um námið.
Fjarnám 1. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun
Haustannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 26. sept. nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt.
Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.                
Skráning er til fim. 22. sept. á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er kr. 24.000.-
Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á vidar@isi.is  Sjá einnig á isi.is
 



Fjarnám 2. stigs ÍSÍ í þjálfaramenntun
Vorannarfjarnám 2. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 3. okt. nk.  Námið tekur 5 vikur og skila nemendur verkefni í hverri viku.
Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar, þjálfarar taka sérgreinahluta hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Fjarnámið er öllum opið sem lokið hafa við 1. stig alm. hluta ÍSÍ eða sambærilegt s.s. ÍÞF 1024. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófs.                
Skráning er til fim. 29. sept. á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er kr. 18.000.-
Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á vidar@isi.is  Sjá einnig á isi.is