Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun!

15. október 2009
Fréttir
Haustannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 2. nóv. nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Haustannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 2. nóv. nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt.
Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.  Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.
Skráning er til 29. október á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er aðeins kr. 3.500.-
Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á vidar@isi.is