Firnasterk töltkeppni í Rangárhöllinni

21. febrúar 2018
Fréttir

Eftir firnasterka keppni í tölti í Suðurlandsdeildinni var það öflugt lið Heimahaga sem stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins en liðsmenn Heimahaga lentu í 1. og 3. sæti í flokki atvinnumanna og 6., og 10. í flokki áhugamanna.

Keppnin var jöfn og mörg glæsileg hross sem komu í braut. Hulda Gústafsdóttir og Draupnir frá Brautarholti úr liði Heimahaga sigruðu flokk atvinnumanna og Hákon Dan Ólafsson á Gormi frá Garðakoti úr liði Sunnuhvols/Ásmúla sem sigraði flokk áhugamanna.

Staðan í liðakeppninni eftir fyrstu tvær keppnir af fjórum í Suðurlandsdeildinni.

Sæti

Lið

Stig

1

Krappi

144

2

Heimahagi

130

3

Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð

120

4

Húsasmiðjan

110,5

5

IceWear

103

6

Bakkakot/Kolsholt/Álfhólar

101

7

Árbæjarhjáleiga/Herríðarhóll

93

8

Sunnuhvoll/Ásmúli

92

9

Kálfholt/Hjarðartún

89

10

GG Gröfuþjónusta og VÍKINGarnir

87

11

Þverholt/Pula

74

12

Litlaland Ásahreppi

56,5

 

Úrslit í hvorum flokk fyrir sig má sjá hér að neðan.

Tölt – áhugamenn

Sæti

Keppandi

Hestur

Lið

Einkunn

1

Hákon Dan Ólafsson

Gormur frá Garðakoti

Sunnuhvoll/Ásmúli

6,89

2

Katrín Sigurðardóttir

Yldís frá Hafnarfirði

Húsasmiðjan

6,83

3

Lea Schell

Tinna frá Laugabóli

Krappi

6,50

4

Benjamín Sandur Ingólfsson

Mugga frá Leysingjastöðum II

Krappi

6,44

5

Þorgeir Ólafsson

Hlynur frá Haukatungu Syðri I

Bakkakot/Kolsholt/Álfhólar

6,33

6

Jóhann Ólafsson

Sólroði frá Reykjavík

Heimahagi

6,11

 

Tölt – atvinnumenn

Sæti

Knapi

Hestur

Lið

Einkunn

1

Hulda Gústafsdóttir

Draupnir frá Brautarholti

Heimahagi

7,61

2

Ásmundur Ernir Snorrason

Frægur frá Strandarhöfði

Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð

7,39

3

Hinrik Bragason

Hreimur frá Kvistum

Heimahagi

7,39

4

Vignir Siggeirsson

Hátíð frá Hemlu II

Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð

7,33

5

Davíð Jónsson

Ólína frá Skeiðvöllum

Húsasmiðjan

7,28

6

Lena Zielinski

Kolka frá Hárlaugsstöðum

Krappi

6,72

7

Sæmundur Sæmundsson

Austri frá Úlfsstöðum

Kálfholt/Hjarðartún

6,67

 

Næsta keppni fer fram 6. mars og verður keppt í parafimi. Fyrst var keppt í parafimi á síðasta ári og er hvergi á Íslandi keppt í þessari grein nema í Suðurlandsdeildinni. Á síðasta ári heppnaðist greinin virkilega vel og margar glæsilegar sýningar. 

Parafimi er keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfileika, fegurð, kraft og glæsileika hestsins. Knapar eru í pörum inná, einn atvinnuknapi og einn áhugamaður og því reynir einnig á samvinnu þeirra. Parið getur verið skipað tveimur áhugamönnum.

Hægt er að fylgjast með Suðurlandsdeildinni með því að fylgja viðburðinum hér: 

https://www.facebook.com/events/1567726689929388/?active_tab=about 

Mynd: Lið Heimahaga, sigurvegari kvöldsins ásamt f.v. Ólafi Þórissyni formanni Hestamannafélagsins Geysis og Eiríki Vilhelm mótsstjóra Suðurlandsdeildarinnar.