Fimmgangur á fimmtudag

07. mars 2011
Fréttir
Senn líður að fjórða móti Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Mótið fer fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, næst komandi fimmtudag klukkan 19:30. Senn líður að fjórða móti Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í fimmgangi. Mótið fer fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, næst komandi fimmtudag klukkan 19:30.

Fimmgangur er ein af þeim greinum sem keppt hefur verið í frá upphafi deildarinnar og hér að neðan má sá þá knapa sem hafa sigrað deildina áður.

2001    Sigurður Sæmundsson     Esjar frá Holtsmúla
2002    Sigurbjörn Bárðarson    Bylur frá Skáney
2006    Þorvaldur Árni Þorvaldsson      Þokki frá Kýrholti
2007    Hulda Gústafsdóttir     Galdur frá Flagbjarnarholti
2008    Hulda Gústafsdóttir     Galdur frá Flagbjarnarholti
2009    Eyjólfur Þorsteinsson   Ögri frá Baldurshaga
2010    Sigurbjörn Bárðarson    Stakkur frá Halldórsstöðum

Gera má ráð fyrir hörkuspennandi keppni í Ölfushöllinni á fimmtudaginn kemur. Forsala aðgöngumiða hefst á mánudaginn í verslunum Líflands, Top Reiter og Baldvini og þorvaldi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.