FEIF Youth Cup - opið fyrir umsóknir

27. febrúar 2014
Fréttir
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Cup sem haldið verður dagana 11. - 20. júlí 2014 að Hólum í Hjaltadal. Heimasíðan www.lhhestar.is/is/youth-cup-2014 er upplýsingasíða mótsins.

Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Cup sem haldið verður dagana 11. - 20. júlí 2014 að Hólum í Hjaltadal. Heimasíðan www.lhhestar.is/is/youth-cup-2014  er upplýsingasíða mótsins.

Skilyrði fyrir þátttöku eru:

  • Reynsla í hestamennsku
  • Keppnisreynsla í íþróttakeppni
  • Góð enskukunnátta
  • Sjálfstæði og jákvæðni
  • Að geta unnið í hóp
  • Reglusemi

Á vef FEIF Youth Cup er að finna umsóknareyðublað sem fylla þarf út og senda til skrifstofu LH. Einnig þarf bréf frá umsækjanda að fylgja, þar sem hann segir frá sjálfum sér, áhugamálum, hestamennsu og því sem hann vill koma á framfæri.

Nánari upplýsingar fást á heimasíðu FEIF Youth Cup, skrifstofu LH og hjá æskulýðsfulltrúum LH og hestamannafélaganna.

Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1. apríl 2014. Senda má umsóknir á ofangreint póstfang í bréfpósti eða í tölvupósti á netfangið hilda@landsmot.is.

Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga