FEIF fréttir

28. september 2011
Fréttir
Mánaðarlega sendir FEIF frá sér rafrænt fréttabréf og kynnir ýmsa viðburði sem eru á dagskrá samtakanna. Mánaðarlega sendir FEIF frá sér rafrænt fréttabréf og kynnir ýmsa viðburði sem eru á dagskrá samtakanna.
Í septemberútgáfu fréttabréfsins er m.a. kynnt FEIF ráðstefnan sem fram fer í Stokkhólmi 2.-4. mars n.k. Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.

Í lok október verður haldin menntaráðstefna á vegum FEIF og verður hún samtvinnuð alþjóðlegri hestavísindaráðstefnu í Hollandi í lok mánaðarins. Frekari upplýsingar má finna með því að smella hér.

Heimsmeistaramótið í Austurríki reyndist vera "hreinn íþróttaviðburður", þ.e. í blóðprufum sem teknar voru úr keppnishestunum fundust engin ólögleg efni. Yfir 10% þátttökuhestanna var prófaður að þessu sinni og var dregið um hvaða hestur færi í lyfjapróf í forkeppni og úrslitum. Þetta eru sannarlega ánægjulegar fréttir og niðurstöður.

Íþróttadómarapróf verða haldin á búgarði Piet Hoyos í Semriach í Austurríki dagana 7.-9. október í tengslum við "Steierische Landesmeisterschaften". Bæði er hægt að taka próf til réttindanna "Alþjóðlegur íþróttadómari" og "Landsdómari". Skráningar fara fram hjá landssamböndum hvers lands fyrir sig.

Hægt er að gerast áskrifandi að FEIF fréttabréfinu með því að smella hér og senda.

Heimasíða FEIF er www.feif.org