Fákar og fjör

01. febrúar 2012
Fréttir
Hestamannafélagið Léttir heldur stórsýninguna Fáka og fjör 2012 þann 14. apríl n.k. í Reiðhöllinni Akureyri. Hestamannafélagið Léttir heldur stórsýninguna Fáka og fjör 2012 þann 14. apríl n.k. í Reiðhöllinni Akureyri.

Fjölbreytt dagskrá verður í boði með  keppnis- og kynbótahrossum, skemmtiatriðum, hrossaræktarbú sækja sýninguna heim, tilþrifaskeið o.fl. 

Við fáum stórstjörnur í heimsókn, bæði knapa og hesta og segjum við nánar frá því þegar nær dregur. 

Það verður því af nógu að taka fyrir alla áhugamenn um hestamennsku á þessari sýningu. 

Sýningin hefst kl. 18 og verður henni skipt í þrjá hluta, með tveimur hléum.  Þetta fyrirkomulag gafst afar vel á liðnu ári og verður endurtekið nú. 

Verið velkomin á sýninguna Fákar og fjör 2012 á Akureyri.
Nefndin.