Equsanadeildin - lið 9-12

01. febrúar 2018
Fréttir

Áhugamannadeild Spretts, Equsana deildin 2018, hefst 8. febrúar n.k. og þar með hefst fjórða keppnisárið í þessari frábæru mótaröð. Hér má sjá lið 9-12.

Deildin hefst með keppni í fjórgangi fimmtudaginn 8. febrúar kl. 19:00. Sem fyrr er aðgangur ókeypis og fólk hvatt til að mæta í Sprettshöllina til að njóta flottra sýninga og góðra veitinga.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

  • Fimmtudagur 8 febrúar – Fjórgangur
  • Fimmtudagur 22 febrúar – Fimmgangur
  • Fimmtudagur 8 mars – Slaktaumatölt og flugskeið í gegnum höllina
  • Fimmtudagur 22 mars – Tölt – Lokamótið

 Lið 9-12 sem við kynnum nú til leiks eru lið Kalda, Kælingar, Mustad og Sindrastaða.

kaldi

kæling

mustad

sindrastaðir