Endurskinsmerki fyrir alla!

09. desember 2013
Fréttir
Mikilvægt er að auka öryggi sitt og sinna með því að nota ávallt endurskin þegar skyggja tekur. Með því sjáumst við allt að fimm sinnum fyrr en ella.

Mikilvægt er að auka öryggi sitt og sinna með því að nota ávallt endurskin þegar skyggja tekur. Með því sjáumst við allt að fimm sinnum fyrr en ella. 

Sýnum hvert öðru tillitssemi með því að vera sem sýnilegust í umferðinni. Þá gefst öllum betri tími til að bregðast skjótt og rétt við þegar þörf krefur. 

Hér má finna tvær gerðir af endurskinspökkum sem komnir eru í sölu víða um land og er það öryggisnefnd LH í samstarfi við tryggingafélagið VÍS sem stendur að þessu átaki.