Dýralæknaskoðun

17. júlí 2013
Fréttir
Nú styttist í ferð íslenska landsliðsins á HM í Berlín en í dag eru einungis 15 dagar í að lagt verði í hann. Samkvæmt venju fara hestarnir þó aðeins á undan liðinu sjálfu en dýralæknaskoðun fyrir flugið mun fara fram á Grænhól miðvikudaginn 24.júlí kl 10:00.

Nú styttist í ferð íslenska landsliðsins á HM í Berlín en í dag eru einungis 15 dagar í að lagt verði í hann. Samkvæmt venju fara hestarnir þó aðeins á undan liðinu sjálfu en dýralæknaskoðun fyrir flugið mun fara fram á Grænhól miðvikudaginn 24.júlí kl 10:00. Knapar eru minntir á að koma með reiðtygin sín með í skoðun og hafa þau þá klár fyrir útflutning.