Davíð Ólafsson veislustjóri á Uppskeruhátíð

21. október 2010
Fréttir
Davíð Ólafsson - undrabassi og skemmtikraftur
Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin þann 6.nóvember nk. á Broadway. Miðasala fer fram á Broadway, Ármúla 9, 108 Reykjavík, s: 533-1100 og á netfanginu: midasala@broadway.is Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin þann 6.nóvember nk. á Broadway. Miðasala fer fram á Broadway, Ármúla 9, 108 Reykjavík, s: 533-1100 og á netfanginu: midasala@broadway.is Hátíðin verður með hefðbundnu sniði, þ.e. þriggja rétta glæsilegur málsverður, veitt verða knapaverðlaun, skemmtidagskrá og dansleikur fram eftir nóttu þar sem Helgi Björns mun trylla lýðinn.

Veislustjórn verður í höndum hins landskunna Davíðs Ólafssonar, undrabassa og skemmtikrafts.
Verð fyrir matinn og ballið er 7.500kr. en 2500kr. bara fyrir ballmiða.

Það er ljóst að hestamenn ætla að fjölmenna á Uppskeruhátíðina sem haldin er af Landssambandi hestamannafélaga.